Möguleikarnir eru óteljandi;
veggir, vörður, stígar, legsteinar, útigrill, blómapottar, heitar laugar, sandkassar, stígar – og margt fleira mætti telja.
Með yfir tuttugu ára reynslu af hleðslulistinni og landslagsmótun hjálpa ég þér að gera þína sýn að veruleika!
Fyrir mér er hvert verkefni listsköpun, hvort sem það er myndlist, torf- og grjóthleðslur, námskeið og kennsla, hellulagnir, viðgerðir eða ný smíði.
Ég er menntaður myndlistarmaður, en fór snemma að vinna sem verktaki við fjölbreytt verkefni. Ég féll svo fyrir fornverki og hleðslulistinni í Fornverkaskólanum undir leiðsögn Helga Sigurðssonar fyrir tæpum 20 árum.
Það hefur síðan verið ríkur hluti af minni sköpun, en ég tek einnig að mér fjölbreytt verkefni á sviði hellulagna, hönnunar, smíði og viðgerða.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af fjölbreyttum verkum sem ég hef unnið. Á portfólíó síðunni má sjá nánari upplýsingar um hvert verk.